Foreldramorgnar verða í vetur á fimmtudagsmorgnum og verður opið hús frá kl. 10-12. Boðið verður upp á léttar veitingar og fræðandi erindi frá góðum gestum.
Umsjón með foreldramorgnum hefur Vilborg Pála. Hún er 28 ára þriggja barna móðir í fæðingarorlofi. Hún hefur unnið með börnum frá unglingsárum meðal annars í leikskóla, barnastarfi og sumarbúðum. Vilborg og dóttir hennar Lilja Karen bíða spenntar eftir að hitta ykkur.
Foreldramorgnar hefja göngu sína 12. sept.