Á morgun, 31. janúar, verður fyrsta karlakaffið á nýju ári í Fella- og Hólakirkju kl. 10:00.
Gestur okkar að þessu sinni verður Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður á RÚV. Hann skrifaði bókina ,,Með harðfisk og hangikjöt að heiman“ sem kom út fyrir síðustu jól og fjallar um þátttöku Íslands á sumarólympíuleikunum í London árið 1948. Þorkell ætlar að kynna þessa áhugaverðu bók fyrir okkur og eflaust einnig ræða um handboltann og fleira sem er í deiglunni. Hægt verður að kaupa bókina eftir stundina.
Kaffi, vínarbrauð og gott samfélag eins og alltaf.