Næsta sunnudag, 29. september, verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00.

Það verður mikið sungið, dansað og slegið á létta strengi.

Sr. Pétur Ragnhildarson leiðir stundina ásamt Nönnu Birgisdóttur Hafberg æskulýðsfulltrúa.

Íris Rós Ragnhildardóttir leikur undir söng.

Boðið verður upp á smákökur, kanilsnúða og djús eftir stundina. Allar fjölskyldur velkomnar.

 

Í Breiðholtskirkju verður kvöldmessa kl. 20:00. Frekari upplýsingar hér – kvöldmessa.