Næsta sunnudag verður ekki messa í Fella- og Hólakirkju.

Það verður messa í Breiðholtskirkju kl. 11:00 þar sem sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar fyrir altari og prédikar og Örn Magnússon organisti leiðir tónlistina.

Kl. 14:00 fer vígsla sr. Guðrúnar Karls Helgudóttur til biskups Íslands fram í Hallgrímskirkju. RÚV sýnir frá vígslunni í beinni útsendingu og er allt kirkjufólk hvatt til þess að fylgjast með vígslunni.

Næsta messa í Fella- og Hólakirkju verður 8. sept, kl. 20:00.