Í júlí verður ekki helgihald á sunnudögum í Fella-og Hólakirkju. Engu að síður verða kyrrðarstundir alla miðvikudaga kl. 12 í Breiðholtskirkju og guðsþjónustur á sunnudögum kl. 11 í Seljakirkju.

Fram að Verslunarmannahelgi er ekki hefðbundinn opnunartími í kirkjunni. Guðsþjónustur hefjast aftur í Fella- og Hólakirkju í ágúst og allt hefðbundið safnaðarstarf í september. Fylgist með auglýsingum hér á heimasíðunni og Facebooksíðunni okkar.

Fyrir prestsþjónustu eða aðrar upplýsingar um starf kirkjunnar, hafið samband við Sr. Jón Ómar Gunnarsson, jon.gunnarsson@kirkjan.is.

Titilmynd fréttarinnar af Fella- og Hólakirkju tók Kristján Söebeck.