Næsta sunnudag, 7. júlí er göngumessa í Fella- og Hólakirkju.

Gengið verður frá Seljakirkju kl. 10:00 til messu í Fella- og Hólakirkju kl. 11:00.

Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari og prédikar.

Kór Fella- og Hólakirkju leiðir safnaðarsönginn undir stjórn Arnhildar organista.

Eftir stundina verður boðið uppá  messukaffi í safnaðarheimilinu.

Allir eru velkomnir til guðsþjónustunnar, hvort sem þeir taka þátt í göngunni eða ekki!

Gönguguðsþjónusturnar í Breiðholti eru orðnar að áralangri hefð. Þetta eru góðar og uppbyggilegar stundir og hvetjum við Breiðhyltinga nær og fjær til að taka þátt. Þetta er síðasta göngumessan sumarið 2024.