Næsta sunnudag, 23. júní er göngumessa í Fella- og Hólakirkju.

Gengið verður frá Seljakirkju kl. 10:00 til messu í Fella- og Hólakirkju kl. 11:00.

Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari og sr. Sigurður Már Hannesson prédikar.

Kór Fella- og Hólakirkju leiðir safnaðarsönginn undir stjórn Arnhildar organista.

Eftir stundina verður messukaffi.

Gönguguðsþjónusturnar í Breiðholti eru orðnar að áralangri hefð. Þetta eru góðar og uppbyggilegar stundir og hvetjum við Breiðhyltinga nær og fjær til að taka þátt. Þau sem treysta sér ekki í gönguna geta mætt beint í guðsþjónustuna.

30. júní er gengið frá Breiðholtskirkju að Seljakirkju.

7. júlí er gengið frá Seljakirkju að Fella- og Hólakirkju.

Skipulagið á göngumessunum í sumar

Góður hópur í göngu fyrr í sumar