images (1)FORELDRAMORGNAR

Alla fimmtudagsmorgna í vetur eru foreldramorgnar í safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju frá kl. 10-12.

 

Þar er boðið upp á samverustund fyrir börn og foreldra þeirra, ömmur, afar og systkini eru líka boðin. Allir eru velkomnir og börnin eru frá því að vera örfárra vikna upp að leikskóla aldri.

Ekki láta hugsunina um að þú „þekkir ekki neinn“ stoppa þig, yfirleitt eru alltaf ný andlit á morgnunum og gaman þegar bætist í hópinn okkar.

Vertu með 🙂 

Við gerum ýmislegt skemmtilegt saman, förum á kaffihús, fáum fræðsluerindi, nú eða kynningar á vönduðum vörum fyrir börn og foreldra.

Boðið er uppá kaffi, og létt meðlæti þátttakendum að kostnaðarlausu. Það er alltaf mjög gaman hjá okkur á foreldramorgnum og góður andi í hópnum.

Sameiginlega áhugamálið – barnið tengir okkur saman enda gott að setjast niður og spjalla við aðra sem eru á sama stað í lífinu og skiptast á ráðleggingum.  Umsjón með foreldramorgnum hafa Jóhanna Freyja og Kristín