Næsta sunnudag verður guðsþjónusta kl.11.Sr. Svavar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari. Þorvaldur Halldórsson syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna F Björnsdóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Ragnhildar Ásgeirsdóttur djákna og Heiðrúnar Guðvarðardóttur. ,,Byggjum hús“. Mikill söngur og skemmtileg stund.
Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju. Hlökkum til að sjá ykkur.
Guðspjallstexti dagsins er úr Jóhannesarguðspjalli.
,, Hver yðar getur sannað á mig synd? Ef ég segi sannleikann, hví trúið þér mér ekki? Sá sem er af Guði heyrir Guðs orð. Þér heyrið ekki vegna þess að þér eruð ekki af Guði.“
Þeir svöruðu honum: „Er það ekki rétt sem við segjum að þú sért Samverji og hafir illan anda?“
Jesús ansaði: „Ekki hef ég illan anda. Ég heiðra föður minn en þér smánið mig. Ég leita ekki míns heiðurs. Sá er til sem leitar hans og dæmir. Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem varðveitir mitt orð skal aldrei að eilífu deyja.“
Þá sögðu þeir við hann: „Nú vitum við að þú hefur illan anda. Abraham dó og spámennirnir og þú segir að sá sem varðveitir orð þitt skuli aldrei að eilífu deyja. Ert þú meiri en faðir okkar, Abraham? Hann dó og spámennirnir dóu. Hver þykist þú vera?“
Jesús svaraði: „Ef ég vegsama sjálfan mig er vegsemd mín engin. Faðir minn er sá sem vegsamar mig, hann sem þér segið vera Guð yðar. Og þér þekkið hann ekki en ég þekki hann. Ef ég segðist ekki þekkja hann væri ég lygari eins og þér. En ég þekki hann og varðveiti orð hans. Abraham faðir yðar vænti þess með fögnuði að sjá dag minn og hann sá hann og gladdist.“
Þá sögðu þeir við hann: „Þú ert ekki enn orðinn fimmtugur og hefur séð Abraham!“
Jesús svaraði: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Áður en Abraham fæddist er ég.“
Þá tóku menn upp steina til að grýta Jesú. En hann duldist og hvarf úr helgidóminum”